|
|
04.09.2006 14:46:15 / trilla
»
06.05.2006 13:30:00 / trilla
þá hefst alvaran, er búin að skrá mig á átaksnámskeið sem byrjar
næsta mánudag puff kvíður bara pínu fyrir, er í svo lélegu formi
að ég held ég eigi eftir að fara illa út úr þessu bara, nei segi
sonna allavegna loksins byrjar þetta, verð ábyggilega voða ánægð
þegar þetta er komið í gang 
Annars gengur matarræðið svona þokkalega, þarf samt að hætta í
pepsímaxinu- held ég sé búin að vera að svolgra aðeins meira en
hálfan líter á dag ótrúlegt hvað þetta verður mikill vani að fá
sér gos, í staðin fyrir að fá sér vatn....
Enn er hellan í eyrunum, búin að gera allt sem mig dettur í hug
og meira en það til þess að losna við hana en hún situr fast við
sinn keip, bölvuð En ég á pantaðann tíma næsta
þriðjudag hjá eyrnalækni- vonandi getur hann bara reddað þessu.
Jæja kveð í bili og góða helgi.
»
01.05.2006 13:11:03 / trilla
Hæ, mætt aftur eftir nokkurt hlé 2.6 kílóum léttari
veit ekki hvort það kemur af góðu en ég fékk þá viðbjóðslegustu
flensu sem um getur, hef bara ekki orðið svona lasin lengi lengi,
byrjaði bara sem kvef sem endaði í eyrnarbólgu í báðum eyrum og 40
stiga hita í viku takk fyrir og það sem verra var að litli minn var
lasin á sama tíma alveg er það nóg að vera með lasið
barn en að vera lasin sjálfur með svona mikinn hita og hugsa um
barnið er einhvað sem ég myndi ekki leggja aftur í 
Er loksins að hressast og get ekki beðið eftir að komast í
vinnuna á morgun. Er reyndar ennþá að snýta mér eins og
brjálæðingur og er með hellu fyrir báðum eyrum, ótrúlegt alveg að
fá í eyrun á gamals aldri og sko bæði í þokkabót, bara
ömurlegt.
En allavegna þá hef ég greinilega misst einhvað af kílóum í
þessu standi og sýnir vigtin núna 85,3 og ég alveg gallhörð á að
halda áfram, ætla að reyna að setja markið á að vera orðin 80 kíló
12 júní, sem eru þá um 5 kíló og 6 vikum, held reyndar að þetta
verði svona erfið kíló en samt maður verður að hafa einhvað að
stefna á 
Ætla að vera líka duglegri að blogga og setja fram
matseðilinn.
Jæja, ætla að kíkja á ykkur
Kveðja
Trilla með hellur fyrir báðum eyrum
»
04.04.2006 14:36:35 / trilla
»
27.03.2006 21:22:39 / trilla
»
21.03.2006 14:07:25 / trilla
300 gr fóru þessa vikuna enda árshátíð og einhvað þarna að
flækjast fyrir mér en þetta potast áfram og það er það sem
máli skiptir. Er einhvað óskup löt að blogga þessa dagana en
fylgist þó með ykkur, það heldur manni gangandi að sjá framfarir
hjá öðrum og styrkir mann þegar kæruleysið hellist yfir.
Er enn ekki farin að æfa, kem mér ekki í það því miður því ég
þyrfti svo að fara að brenna og styrkja mig en svona er maður nú
stundum latur já þetta er ekkert annað en hreinasta leti.... L E
T I 
Matseðillinn ansi svipaður og venjulega, en ég finn að ég má
fara að passa mig svolítið, þetta verður jú að vera 100 % en ekki
einhvað svipað, reyni nú að fara að taka mig á 
Sælar að sinni
»
12.03.2006 12:43:37 / trilla
Jæja, vigtaði mig í morgun og þá var 1,4 kíló farið síðan síðast
ég greinilega léttist bara aðra hverja viku en þetta er
fínt svona.
Annars óskup tíðindalítið af þessum bæ, dreif mig út með kútinn
í gær morgun í snjóinn með snjóþotuna og gekk svo út um allan
hafnarfjörðin eins og vitlaus manneskja, sá reyndar pínu eftir því
af því að snjórinn var svo blautur og það safnast svo mikið undir
sleðann að þetta var bara asskoti þungt að draga en litli hafði
heldur betur gaman af, við gengum um í klukkutíma og enduðum svo á
kaffihúsi og þar hringdi ég í kallinn og lét hann ná í okkur, var
sko ekki að fara að ganga til baka, alveg komin með axlirnar upp að
eyrum....ekki gott fyrir vöðvabólguna Skellti mér
svo í bað fyrir kvöldið og náði þvílíkri afslöppun en steinsofnaði
síðan kl tíu upp í sofa þegar myndin sem við vorum búin að leigja
okkur var rétt að byrja og svo auðvitað var maður vaknaður fyrir
allar aldir í morgun á undan öllum. Skelltum okkur svo aftur
út í labbitúr með sleðan í morgun en nú ég lét kallinn sjá um
að draga prinsinn 
Elska svona helgar, rólegar og góðar, næstu helgi erum við svo
að fara á árshátið hjá vinnunni minni 
Matarræðið óskup svipað, hef misst tæp átta kíló á átta
vikum sem hlýtur bara að teljast ágætt og hef alfarið látið nammið
eiga sig á þessum tíma og er mjög ánægð með það 
Jæja ætla að kíkja á ykkur
»
07.03.2006 20:28:45 / trilla
Stóð í stað þessa vikuna, er satt að segja bara fegin með
tilliti til bolludags og sprengidags og svo rósa blessunin í
heimsókn. En ég þarf að halda fast á spöðunum og vera hörð
áfram Er búin að vera einhvað svo þreytt og slöpp síðustu
daga og með dúndrandi höfuðverk og vöðvabólgu held að
koddinn sé að plaga mig eitthvað, virðist vera of harður, maður er
nú meiri prinsessan, keypti fyrir ári svona tempur kodda sem
kostaði sko sitt og fannst hann ágætur fyrstu vikurnar en síðan hef
ég ekki getað notað hann , hef síðan sofið á 500 króna svampkodda
úr rúmfó en nú virðist einhvað babb vera komið í bátinn, var að
heyra um vatnskodda og þar sem ég er frekar nýjungagjörn
strengdi ég þess heit að ég myndi EKKI kaupa svoleiðis,
ætla að prufa svona venjulegan þunnan kodda í kvöld með og hafa
hitapokann á honum 
Matseðillinn í dag
mm: 30 gr hafragr og ávöxtur
mk: appelsína
hm: 1 egg, 40 gr lax og 60 gr brauð og 300 gr grænm.
k: epli
km: kjúklingasalat
kk: jarðaber með súkkulaðisósu
En er einhvað klikk´í blogginu? alltaf þegar ég ætla að kommenta
hjá ykkur þarf ég að slá inn einhverjar tölur neðst til þess að
geta staðfest Er þetta líka svona hjá ykkur eða kanski
bara mér ?????
»
02.03.2006 20:41:00 / trilla
georg er besta gæðaskinn..... söngvaborg enn á
ferðinni. Smá skrans í bollulátunum en svo sem ekkert
alvarlegt, fékk mer 2 litlar og síðan fékk ég mér saltkjöt hjá
múttu á þriðjudaginn, drakk ábyggilega 2 lítra af vatni eftir að ég
kom heim... ekkert smá þyrst.
Annars hefur vikan gengið bærilega, litli minn enn lasinn,
endaði nátturlega með í eyrunum í gær , byrjaði að leka úr
eyranu 5 mínutum eftir að ég sagði að hann fengi ábyggilega ekki í
eyrun úr þessu 
Er alvarlega farin að leiða hugann að því að fara að æfa, á kort
í sporthúsinu en mig langar svo innilega ekki þangað , æ ég veit
ekki af hverju....en svo var ég að heyra um curves, hafið þið heyrt
einhvað um það?? þeir eru ekki með heimasíðu, allavegna ekki
svo ég viti, ætli maður verði ekki að staulast þangað um helgin og
kíkja á þetta og ef mér líst vel á þá að kaupa mánaðarkort.
Svo er náttúrlega ansi smellið að kíkja með henni hlunku minn í
sund, ehaggi hlunka mín????
Skelli inn matseðli dagsins
mm: 30 gr hafragrautur og 2 apríkosur
hm: beygla með skinku og 300 gr grænmeti
k: appelsína
km: pasta-laxa sallat og 2 msk sýrður rjómi
kk: 150 gr jarðaber og ís
Jæja ætla að kíkja smá rúnt
thjá
»
26.02.2006 13:24:48 / trilla
Vigtaði mig í dag og sú gamla sýndi 89,7
     1,7 kíló farið siðan síðast
var svo glöð að sjá nýjan tug að ég réð mér varla fyrir kæti.
Annars er litli minn búin að vera svo mikið lasin, 40 stiga hiti
og svakalegur slappleiki þannig að ég hef lítið náð að
skrifa einhvað og hvað þá að kíkja hjá ykkur, en nú fer þetta allt
að koma Ömurlegt að sjá hann svona lasinn, en hann er
orðin hitalaus núna en samt svona slappur, þetta er örugglega
influensan sem hann hefur nælt sér í 
Annars gengur allt vel, dagur bollunnar á morgunn, synd að geta
ekki staðið undir nafnið og hámað í sig nokkur stykki hehehehe en
ætli maður fái sér ekki eina, hver veit, kanski ekki, er svo
uppveðruð núna að ég hugsa að ég sleppi því 
Matseðillin alveg eins og vanalega.
Vonandi hafði þið átt góða helgi
»
21.02.2006 14:35:21 / trilla
Jæja nú skal taka á því, ætla að setja mér smá takmark á næstu 5
kíló, og set 3 apríl sem þann dag sem þetta á að takast, smá pressa
bara, tíminn líður svo rosalega hratt að sumarið er bara farið að
nálgast ansi hratt það gengur ekki að standa svona í
stað ef maður ætlar að spóka sig um í
bikiní í sumar 
Sem sagt þann 3 april ælta ég að vera orðin 86,5 kíló, nú þýðir
ekkert væl bara hart til orustu
mm: 30 gr haframjöl og 2 apríkosur og 1 msk mjólk
k: appelsína
hm: 300 gr grænmeti og 2 brauðsneiðar og bland af laxi, eggi og
smá kjúlla
k: epli
km: pasta-laxa- sallat , 2 msk sýrður rjómi og 300 gr
grænmeti
kk: rest af mjólkurskammti- geri mér líklegast ís
Eigið góðan dag
»
20.02.2006 21:03:38 / trilla
stóð í stað enda fór ég aðeins yfir strikið þessa helgin
fékk mér nú ekkert namm en smá rauðvín og pizzu og einhvað
en ekkert til að trillast yfir bara halda fast áfram og taka smá
hörkuviku
Gengið vel í dag og ekkert nema gott um það að segja 
menu
mm. 30 hafragrautur og 2 apríkosur
k: appelsína
kk: rúnstykki með osti og 300 gr græn.
k. epli
kk: fiskur með sveppum og 300 gr grænmeti
kk: 150 gr jarðaber með súkkulaði og 1 íspinni
jæja ég kveð í bili
»
17.02.2006 14:14:46 / trilla
hellú, enn á ný er komin föstudagur, allir að tala um það hvað
tíminn líður hratt, líklegast svona gaman hjá öllum,
Róleg og góð helgi fram undan, býð systu og bro í kvölmat í
kvella og svo er það náttlega idolið í kvöld Ætlum að
grilllla og svo súkkulaði ís í eftirmat æði gæði.
Síðan er eurovision á laugardaginn, ætli Silvía vinni þetta
ekki??? gerði svona smá skoðanakönnun í skólanum, spurði nokkra sem
komu hvern þeir ætluðu að kjósa og það ætluðu allir að kjósa
Silvíu, en ég held með andvaka, finnst það bara svo flottttttttttt

Vonandi hafið þið það gott dúllurnar mínar
menu: 1 dl ablétt og ávöxtur, 30 gr brauð með osti og
l&l
k: appelsína
hm: 30 gr brauð, 1 egg og 40 gr graflax + 300 grömmin af
grænm.
k: epli
km: 150 gr lambakjöt, 1 msk sýrður rjómi og 300 gr grænmeti
kk: ís og ávöxtur
Góða helgi 
»
15.02.2006 14:56:21 / trilla
Allt í góðu hér, var samt að spá í einu, ætli það breyti
einhverju hvort maður borði hádegismatinn milli kl 13 og
14???, suma daga er ég nefnilega að vinna til rúmlega eitt og borða
þá hádegismatinn heima, og td í dag var klukkan alveg að vera tvö
því ég fór í bonus á leiðinni heim... ekki það skemmtilegasta að
mínu mati en nauðsynlegt engu að síður. Mig minnir eins
og hún hafi sagt að það skipti engu máli á meðan maður borðaði allt
að sama tíma, sem sagt grænmetið og brauðið og það.
Annars er ég einhvað voða þreytt þessa dagana, alltaf eins og
undin tuska á morgnanna var einhvað sérstaklega mygluð í
dag, litli minn vaknaði snemma þannig að það var lítið hægt að hafa
sig til, fór í sturtu í gærkvöldi og því hárið allt upp í loftið og
sonna sem er kanski ekki frásögu færandi nema hvað að það var
einhvað verkefni í skólanum hjá krökkunum og þeir áttu að taka
myndir af skólalífinu og auðvitað var bankað upp á hjá mér
lenti sem sagt í 5 myndatökum útlítandi eins og
útburður (eins og amma myndi segja.)  
menu
mm: 1 dl ablétt og apríkosur og 30 gr brauð með osti
k: appelsína
hm: 30 gr fittýbrauð með eggi og osti og 300 gr grænmeti
k: epli og pera
km: held það verði hakk og grænmeti, annars er ég alltaf svo
andlaus í sambandi við kvöldmatinn, alltaf með það sama.
Langar svo að prufa kjúkl.baunir
kk: jarðaber með súkkulaðisósu og einn ddv íspinni
Bestu kveðjur
Trilla
»
13.02.2006 14:57:21 / trilla
1 kíló farið síðan síðast, og ég þvílíkt
happí með það Áfram með smjerið, ætla að reyna að
vera doldið passasöm með ostinn í þessari viku og halda áfram í
laxinum, langar svooo að fara að sjá töluna áttatíu og
einhvað
Mikið er þetta annars fallegur dagur, milt og gott úti, rölti út
í búð áðan að kaupa fisk og þá var greinilega einhver í blokkinni
að baka brauð ummmmmmmmm
Menus
mm: 30 gr hafragrautur og 2 apríkósur og 1 msk mjólk
hm: 1 skyr.is- vanillu 300 gr grænm. og 60 gr brauð með l&l
og sultu
k: appelsína og epli
km: sveppafiskurinn góði og 300 gr grænm.
kk: smá ís og 1 ávöxtur
Eigið góðan dag 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|